Lög félagsins

1. grein

Félagið heitir Petanque Reykjavík

2. gr.

Tilgangur félagsins er að efla íþróttaiðkun í Petanque.

3. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með æfingum og keppni.

4. gr.

Félagsaðild hafa þeir sem sækja um inngöngu í félagið og greiða árgjald.

5. gr.

Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins skuldlausir félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.

6. gr.

Aðalfund skal halda í febrúar – apríl ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

2. Fundargerð síðasta aðalfundar

3. Skýrsla stjórnar lögð fram

4. Reikningar lagðir fram til samþykktar

5. Lagabreytingar

6. Ákvörðun félagsgjalds

7. Kosning stjórnar

8. Kosning skoðunarmanns reikninga

9. Önnur mál

 

7.gr.

Stjórn félagsins skal skipuð 3 félagsmönnum, formanni og 2 meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Einnig er heimilt að kjósa allt að 1 varamann. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.

8.gr.

Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt árlega.

9. gr.

Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið til eflingar á starfsemi þess.

10. gr.

Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til góðgerðamála, sem fundurinn ákveður. Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi félagsins 18. nóvember 2017. Dagsetning: 18. nóvember 2017.